www.brjostagjof.is
vefur um brjóstagjöf og uppeldi barna
Upphafs síðaStuðningur við foreldraBrjóstagjöf fullburða barnaSérstök brjóstagjöfBrjóstagjöf fyrirburaÝmislegt tengt brjóstagjöfFyrir fagfólk um brjóstagjöfÞær sem standa að brjostagjof.isÁhugavert efni um brjóstagjöfÞroski barnaCommon Page
Heimildaleit um brjóstagjöf
Menntun á sviði brjóstagjafar
Ráðstefnur og námskeið um brjóstagjöf
Brjóstagjafa tímarit
Kennslumyndbönd um brjóstagjöf
Gæði brjóstagjafa-þjónustu
Þær sem standa að brjostagjof.is

Við sem að þessari síðu stöndum eigum það sameiginlegt að vilja stuðla að farsælli brjóstagjöf á Íslandi. Áhugi okkar á þessu málefni er djúpur en er búinn að standa mislengi. Hugmyndir okkar um þessa síðu er að þar verði auðvelt að nálgast almennar upplýsingar sem geta reynst hjálplegar en einnig verði hægt að nálgast fræðilegar rannsóknir á sviði brjóstagjafar. Þannig viljum við koma til móts við þarfir mæðra en einnig þarfir hjúkrunarfræðinga og annars fagfólks. Við gerum okkur ljóst að þetta er mikið verkefni og biðjum lesendur um að sýna þolinmæði, því allt tekur sinn tíma.
 


 Hulda Sigurlína Þórðardóttir
Hulda Sigurlína Þórðardóttir

Ég er fædd í Keflavík 15.04.1963 en alin upp í Kópavogi þar sem ég bý nú eftir að hafa verið 11 ár í Hveragerði. Ég er gift Sigurði Guðmundssyni, rekstrarfræðingi og eigum við þrjú börn, Guðmund Vigni f. 1985, Svandísi f.1989 og Rakel Rebekku 2002. Ég er hjúkrunarfræðingur að mennt (1988) og stunda nú ljósmæðranám sem meistaranám við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands.

Ég hef starfað víða sem hjúkrunarfræðingur m. a. á sængurkvennagangi og barnadeild Landakotsspítala. Ég var einnig hjúkrunarforstjóri á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði um árabil. Hef stýrt umræðu-og fræðslufundum um brjóstagjöf í mörg ár, samtals. Sumarið 2008 tók ég alþjóðlegt próf sem brjóstagjafaráðgjafi, IBCLC og starfa við brjóstagjafaráðgjöf, ásamt vinnu við símaráðgjöf á Læknavaktinni ehf. Stunda nú nám við Ljósmóðurfræði við HÍ.

Í meistaranámi mínu í HÍ hef ég skoðað sérstaklega stuðning við brjóstagjöf og mikilvægi hans til að brjóstagjöf verði farsæl. Það kemur heim og saman við reynslu mína af stuðningi fagfólks við brjóstagjöf. Ég var svo heppin að búa í Kópavogi þegar fyrstu tvö börnin fæddust og naut stuðnings frá Rannveigu Sigurbjörnsdóttur hjúkrunarfræðingi sem þá starfaði við Heilsugæslustöð Kópavogs. Hún var með vikulega stuðningsfundi fyrir nýbakaðar mæður og ég er viss um að ef hennar hefði ekki notið við þá hefði brjóstagjöf mín og margra annarra, ekki orðið eins farsæl og síðar varð. Stuðningur, sem getur verið tæknilegur, tilfinningalegur, áþreifanlegur eða fræðilegur er það sem skipti höfuð máli.

Veffang:
huldalina@simnet.is
 


 
Arnheiður Sigurðardóttir  

Ég er fædd 08.09.1962 á Akranesi. Fluttist nokkurra mánaða til Reykjavíkur nánar tiltekið í starfsmannabústað á Kleppsspítala.  Bjó þar með hléum, á milli þess áttum við systkinin heima í smáíbúðahverfinu hjá ömmu og afa á meðan móðir okkar stundaði nám erlendis.  Barnsskónum sleit ég í Breiðagerðisskóla og síðar Langholtsskóla en síðan lá leið í Fjölbrautaskólann í Breiðholti á listnámsbraut.  Eftir hálfs árs veru í Oxford í Bretlandi snéri ég heim og hóf nám í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands. Er gift Ívari Magnússyni tæknifræðingi og eigum við tvö börn Brynjólf Svein og Þórunni Sigurborgu.  Fyrir átti Ívar Brynju Dögg, Pál og Helgu. Saman eigum við föngulegan hóp barnabarna.

Er hjúkrunarfræðingur, brjóstagjafaráðgjafi IBCLC (2003 og 2008) og lýðheilsufræðingur MPH að mennt (2008), hef unnið í tengslum við brjóstagjöf í rúm 21 ár.  Starfa í dag við þjónustu og fræðslu til sjúkrahúsa, mjaltavélaleiga og apóteka með brjóstagjafahjálpartæki. Lauk Dipl. Ed. frá Hákólanum í Reykjavík 2010. Lauk M.ed. nám frá Háskólanum í Reykjavík 2011. Stunda í dag nám til kennsluréttinda fyrir háskólakennara við kennslumiðstöð Hákskóla Íslands. Stafa hjá Medus ehf. og Ýmus ehf. Samhliða þessu er ég stundakennari við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands.

Hef stýrt sjálfshjálparhópum fyrir mjólkandi mæður að fyrirmynd alþjóða brjóstagjafasambandsins La Leche League International og er útskrifaður brjóstagjafaleiðbeinandi (LLL-leader) frá þeim.  Er tengiliður Alþjóðasamtaka mjólkurbanka, hef verið í ritstjórn Mjólkurpóstsins sem var fræðslurit um brjóstagjöf gefið út af Áhugafélaginu Barnamáli. Er heiðursfélagi í Barnamáli áhugafélagi um brjóstagjöf.

Hóf starfsferil minn sem hjúkrunarfræðingur í ungbarnavernd á heilsugæslustöðinni Sólvangi í Hafnarfirði.  Fyrstu kynni mín af brjóstagjöf voru við störf á sængurkvennadeild Landspítala og síðar gegnum eigin reynslu og tel ég mikilsvert að hafa notið stuðnings og leiðsagnar Rannveigar Sigurbjörnsdóttur hjúkrunarfræðings, sem hefur ávallt verið fyrirmynd mín.  Rannsóknir sem ég hef unnið að eru: Könnun á líðan reykvískra kvenna á síðari hluta tíðahrings og Reynsla mæðra af brjóstagjöf fyrirbura.  Skrifað fjölda greina sem má meðal annars finna á kvennaslodir.is.

veffang:
arnheidur06@ru.is og Arnheid@hi.is  framkvæmdastjóri Medus ehf. sem rekur brjostagjof.is



Guðrún Jónasdóttir

Guðrún Jónasdóttir

Ég er fædd í Kópavogi 30.07.1959 og hef búið þar alla tíð. Ég á fjögur börn, Jónas Óskar (f. 1983) Ingvar og Öldu (f. 1987) og Oddrúnu (f. 1990). Ég kynntist starfi Áhugafélags um brjóstagjöf í Kópavogi 1987 og fékk mikilvægan stuðning fyrir tvíburabrjóstagjöf það ár hjá Rannveigu Sigurbjörnsdóttur hjúkrunarfræðingi við Heilsugæslu Kópavogs. Var starfandi í Áhugafélagi um brjóstagjöf í mörg ár, starfaði í ritnefnd Mjólkurpóstsins, var ritstjóri, tók þátt í opnu húsi á vegum félagsins.

Stofnaði með annarri fyrirburamóður stuðningshóp fyrir fyrirburamæður 1987 og fljótlega kom í ljós að þörf fyrir mjaltavélar var mikil og brýn. Árið 1990 tók ég próf sem brjóstagjafaleiðbeinandi (ammerådgiver) hjá danska félaginu Forældre og födsel.

Ég var heimavinnandi með börnin mín til 2002, en hafði skapað mér sjálfstæða vinnu heima við þýðingar, tölvuvinnslu og útleigu á mjaltavélum.

Árið 2002 opnaði ég svo verslunina Móðurást, mjaltavélaleigu með meiru, sem síðan hefur stækkað og þróast.

Árið 2002 tók ég próf í brjóstagjafaráðgjöf IBCLC og í sumar er ætlunin að endurnýja réttindin.

veffang: gudrun@modurast.is eða modurast@modurast.is






Upphafs síðaStuðningur við foreldraBrjóstagjöf fullburða barnaSérstök brjóstagjöfBrjóstagjöf fyrirburaÝmislegt tengt brjóstagjöfFyrir fagfólk um brjóstagjöfÞær sem standa að brjostagjof.isÁhugavert efni um brjóstagjöfÞroski barnaCommon Page