Lars Åke Hanson og Felicity Savage töluðu á málþingi um brjóstagjöf. Barnvæn sjúkrahús hafa þann tilgang m.a. að styðja brjóstagjöf mæðra svo hún verði ánægjuleg fyrir móður og barn. Hrönn Marinósdóttir hitti læknana Lars Åke Hanson og Felicity Savage sem segja brjóstagjöf afar mikilvæga því hún verndi gegn ýmsum sýkingum í frumbernsku en einnig síðar á ævinni.
þessa grein má finna hér.

Immunobiology of Human Milk er áhugaverð bók og fjallar um verndunarþátt brjóstamjólkur og er eftir Lars Ake Hanson.
Við getum þakkað móðurmjólk fyrir að hafa áhrif á:
- Minnkar líkur á þarmadrepsbólgu um 86%
- Minnkar líkur á eyrnabólgu um allt að 50%
- Minnkar líkur á alvarlegum öndunarfærasýkingum um 72%
- Minnkar líkur á meltingarfærasýkingum um meira en 50%
- Minnkar líkur á endurinnlögn barna á sjúkrahús um allt að 60%
Því er óhætt að segja að bjóstagjöf skili árangri bæði hvað varðar betri heilsu fyrir barn, minni fjarveru foreldra frá vinnu vegna veikinda barns og minni kostnaðar fyrir þjóðfélagið á rekstriheilbrigðiskerfisins.
Af þessu má vera ljóst að það er mjög mikilvægt starf sem móðir vinnur hvort heldur sem hún er með barn á brjósti eða mjólkar sig fyrir barnið, sem er algengt meðal mæðra fyrirbura og veikra barna. Nánar má lesa um verndun brjóstamjólkur á íslensku í Reynsla mæðra af brjóstagjöf fyrirbura (2008).
Heimild
Arnheiður Sigurðardóttir og Geir Gunnlaugsson (2008). Reynsla mæðra af brjóstagjöf fyrirbura. óbirt meistaraverkefni. Reykjavík: Háskólinn í Reykjavík.
Ip, S., Chung, M., Raman, G., Chew, P., Magula, N., DeVine, D., Trikalinos, T. og Lau, J. (2007). Breastfeeding and Maternal and Infant Health Outcomes in Developed Countries (No. 07-E007). Rockville: AHRQ.
Einnig má lesa hér grein Magnúsar Jóhannessonar læknis um virkni brjóstamjólkur á heilsufar barna.
Hér má sjá og hlusta á útskýringar Natalí á staðreyndum um mikilvægi brjóstagjafar fyrir börn reyndar á ensku.
Hér má finna tengil á leit á mbl.is en gegnum árin hafa ótal greinar verið birtar í morgunblaðinu.
Tekið saman af Arnheiði Sigurðardóttur uppfært febrúar 2011.
Háskólinn í Reykjavík, Reykjavík University, 2010.
 |