Ertu með barn á brjósti?
Opið hús – Vorönn 2011
Fræðsla og stuðningur við brjóstagjöf
Efni fundanna:
26. janúar Undirbúningur fyrir brjóstagjöf ætluð verðandi mæðrum/ foreldra
9. febrúar Brjóstagjöf fyrstu mánuðina
23.febrúar Fyrsta fasta fæðan
9. mars Næturgjafir, útivinna og að hætta með barn á brjósti
23. mars Börn á brjósti eftir eins árs aldur
6. apríl Undirbúningur fyrir brjóstagjöf ætluð verðandi mæðrum/ foreldra
22. apríl Brjóstagjöf fyrstu mánuðina
4. maí Fyrsta fasta fæðan
18. maí Næturgjafir, útivinna og að hætta með barn á brjósti
Allir velkomnir – einnig verðandi mæður, feður og ömmur
Miðvikudaga kl.14:00 – 15:30 í Mömmukaffi, Búðakór 1, Kópavogi
Gjald fyrir hvern fund er 500 kr – greiðist á staðnum.
Arnheiður Sigurðardóttir, lýðheilsu-og hj.fræðingur. framhaldsk.kennari og IBCLC brjóstagj.ráðgjafi
Hulda Sigurlína Þórðardóttir, hj.fræðingur, IBCLC brjóstagj.ráðgjafi og ljósmóðurnemi við Háskóla Íslands
Allir fundirnir eru verkefni Arnheiðar og Huldu í námi við Háskóla Íslands.
Opið hús í Mömmukaffi
1. Undirbúningur fyrir brjóstagjöf ætluð verðandi mæðrum/ foreldra
Á þessum fundi er farið í grunnatriðin varðandi samsetningu brjóstamjólkur, verndandi þátt hennar, tengslamyndun, samskipti við brjóstabarnið t.d. fyrstu merki um hungur. Einnig er farið í mikilvægi þess að taki brjóstið rétt, ýmis hagnýt atriði og fleira í þeim dúr. Þessi fundur er fyrir þungaðar konur sem vilja fræðast um brjóstagjöfina en við viljum benda mæðrum á að koma með börn sín séu þau fædd, þarfnist þær stuðnings og fræðslu við brjóstagjöf.
2. Brjóstagjöf fyrstu mánuðina
Þessi fundur er byggir svolítið á umræðuefni fundarins á undan og farið dýpra í brjóstagjöf barna fyrstu 6 mánuðina. Ef einhver vandamál eða spurningar vakna eins og hvernig auka megi mjólkina, sé hún ekki nóg, þá er rætt um það. Hvernig draga megi úr framleiðslu, sé hún of mikil. Hvað það þýðir að vera með barn eingöngu á brjósti. Líðan móður o.fl.
3. Fyrsta fasta fæðan
Á þessum fundi er rætt um hvers brjóstabörn þarfnast helst þegar þau byrja að borða með, oftast uppúr 6 mánaði aldri. Hvaða fæða er heppilegust og hver eru fyrstu merki um að barn þurfi á einnig á annarri fæðu að halda. Rætt um hlutverk brjóstamjólkurinnar síðari hluta fyrsta ársins.
4. Næturgjafir, útivinna og endir brjóstagjafar
Málefni sem brenna á mörgum mæðrum er umræðuefni þessa fundar. Rætt um næturgjafir, hvað þær þýða og mikilvægi þeirra oft á tíðum og hvernig er hægt er að tryggja móður næga hvíld. Við tölum einnig um vinnu utan heimilis og hvernig má samþætta brjóstagjöf og útivinnu og loks er farið yfir leiðir til að enda brjóstagjöf.
5. Börn á brjósti eftir eins árs aldur
Eins og margir vita eru leiðbeiningarAlþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) þannig, að æskilegt sé að börn fá eingöngu brjóstamjólk fyrstu 6 mánuði ævinnar, að brjóstamjólk sé aðalfæða barna allt fyrsta árið og með annarri fæðu til tveggja ára eða eins lengi og móðir og barn kjósa.
Á þessum fundi förum við einkum yfir brjóstagjöf eftir eins árs aldurinn, næringu og tilfinngalegt mikilvægi. Hvað þarf að hafa í huga þegar barn er á brjósti á þessum aldri, þýðingu fyrir móður og barn og mikilvægi stuðnings.
Hugmyndin er sú að best er fyrir móður að koma á alla 5 fundina þó reynslan sýni að þrátt fyrir skipulagða fræðslu þá er enginn fundur eins og margar mæður koma aftur og aftur á sömu fundina og er fengur að þeim. Þær miðla þannig af reynslu sinni til hverrar annarrar og geta einnig óskað eftir að fjallað verði um ákveðin málefni óháð efni fundarins. Sérstaklega er gott að fá mæður með nýfædd börn á fundi með verðandi mæðrum. Oft koma mæður með ákveðnar spurningar í huga. Þó fundirnir séu sniðnir að mæðrum og börnum þeirra þá eru feður, ömmur og afar ávallt velkomnir sem og þeir sem vilja fræðast um brjóstagjöf. Viljum taka það fram af gefnu tilefni að börnin koma að sjálfsögðu með á þessa fundi.
Leiðbeinendur hafa báðar lokið þjálfun frá alþjóðlegu brjóstagjafafélagi, La Leche League International (www.llli.org) í stjórnun umræðuhópa.
Gjald fyrir hvern fund er 500 kr og greiðist á staðnum.
Uppfært febrúar, 2011 af Arnheiði Sigurðardóttur.
 |